3. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 14. október 2020 kl. 09:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:50
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Staða áfengis og vímuefnameðferða á Íslandi Kl. 09:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Kristínu Pálsdóttur, frá Rótinni - félagi um konur, áföll og vímugjafa, og Einar Hermannsson, Valgerði Rúnarsdóttur, Ingunni Hansdóttur og Ásgerði Th. Björnsdóttur frá SÁÁ.

2) Þingmálaskrá félags- og barnamálaráðherra Kl. 10:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ásmund Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Gissur Pétursson, Ernu Kristínu Blöndal, Gunnhildi Gunnarsdóttur, Sóleyju Ragnarsdóttur, Bjarnheiði Gautadóttur og Arnar Þór Sævarsson frá félagsmálaráðuneyti.

3) 17. mál - mannvirki Kl. 11:10
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 2. nóvember og að Vilhjálmur Árnason yrði framsögumaður þess.

4) 159. mál - stéttarfélög og vinnudeilur Kl. 11:10
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 2. nóvember og að Lilja Rafney Magnúsdóttir yrði framsögumaður þess.

5) Starf nefndarinnar framundan Kl. 11:10
Nefndin fjallaði um störf nefndarinnar.

6) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:15